Laus störf

Við erum að ráða í þrjár lykilstöður – framkvæmdastjóra, listrænan stjórnanda og skólastjóra – í boði er að sækja um eitt starf, tvö eða jafnvel öll, ef þú sérð þig í fleiri hlutverkum.

Störfin eru hlutastörf með föstum mánaðarlegum verktakagreiðslum frá og með ágúst - maí ár hvert (samkomulag um sumartímann), og allar stöðurnar bjóða auk launa upp á tekjutengda bónusa.

Fyrir nánari upplýsingar er hægt að hafa samband við Stjórn Improv á improvisland@improvisland.is

Listrænn stjórnandi

Improv Ísland leitar að listrænum stjórnanda til að leiða listræna stefnu félagsins og tryggja framþróun og gæði félagsins. Um er að ræða verktakastarf í hlutastarfi (~30-45%) með sveigjanlegum vinnutíma.

Helstu verkefni listræns stjórnanda eru:

  • Vinna að því að Improv Ísland bjóði upp á hágæða spunasýningar

  • Taka ákvarðanir um sýningahópa, haraldslið og sýningar

  • Hafa yfirumsjón með æfingum sýningahópa og haraldsliða

  • Stuðla að framþróun spunaformsins og nýliðun innan hópsins

  • Upplýsingagjöf til samfélagsins um listræna sýn og starfsemi

  • Ákvarðanataka um auglýsingaefni í samstarfi við framkvæmdastjóra

Við leitum að einstaklingi sem:

  • Hefur víðtæka reynslu af spuna

  • Hefur reynslu sem nýtist í starfinu

  • Býr yfir frábærri samskiptahæfni og leiðtogahæfileikum

  • Getur starfað bæði á íslensku og ensku

Með umsókn skal fylgja ferilskrá og stutt greinargerð um listræna sýn fyrir Improv Ísland.

Umsóknir fyrir eina eða fleiri stöður má senda saman eða í sitthvoru lagi á stjornimprov@gmail.com.

Umsóknarfrestur er til og með 15. júní 2025.



Framkvæmdastjóri

Improv Ísland óskar eftir öflugum og skipulögðum einstaklingi í hlutverk framkvæmdastjóra. Um er að ræða verktakastarf í hlutastarfi (~30-45%) með sveigjanlegum vinnutíma. Framkvæmdastjóri fer með prókúru fyrir hönd félagsins og ber ábyrgð á daglegum rekstri þess í samstarfi við stjórn og listrænan stjórnanda.

Helstu verkefni framkvæmdastjóra:

  • Daglegur rekstur félagsins, þar á meðal fjármál, bókhald og reikningshald

  • Yfirumsjón með praktískum hliðum sýninga

  • Markaðs- og kynningarmál

  • Sókn í fjármögnun, t.d. styrkumsóknir og samvinna við fyrirtæki

  • Umsjón með félagsgjaldatekjum og félagatali

  • Umsjón með giggum og verkefnum á vegum Improv Ísland í samráði við listrænan stjórnanda

  • Upplýsingagjöf til samfélagsins um praktíska þætti

Við leitum að einstaklingi sem:

  • Er sjálfstæður, ábyrgur og lausnamiðaður

  • Hefur reynslu af verkefna- og/eða rekstrarstjórnun

  • Býr yfir skipulags- og samskiptahæfni

  • Hefur áhuga á sviðslistum, skapandi verkefnum og grasrótarstarfi

  • Hefur grunnskilning á bókhaldi og fjármálum

Með umsókn skal fylgja ferilskrá og stutt kynningarbréf.

Umsóknir fyrir eina eða fleiri stöður má senda saman eða í sitthvoru lagi á stjornimprov@gmail.com.

Umsóknarfrestur er til og með 15. júní 2025.

Skólastjóri

Improv Ísland óskar eftir skipulögðum og sjálfstæðum einstaklingi í hlutverk skólastjóra. Um er að ræða verktakastarf í hlutastarfi (15–25%) með sveigjanlegum vinnutíma. Skólastjóri hefur yfirumsjón með námskeiðahaldi á vegum félagsins og gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu og þróun fræðslu innan Improv Ísland.

Helstu verkefni skólastjóra eru:

  • Umsjón og rekstur námskeiða á vegum félagsins

  • Ráðning kennara í samráði við listrænan stjórnanda

  • Uppsetning og skipulag stundaskráa (minnst eitt 301 námskeið árlega)

  • Uppfærsla á námsskrám

  • Samskipti við kennara og nemendur

  • Senda út kennslukannanir í lok námskeiða

  • Vera tengiliður við húsnæði og aðstöðu námskeiða

Við leitum að einstaklingi sem:

  • Er skipulagður, sjálfstæður og áreiðanlegur

  • Hefur góða samskiptahæfni og frumkvæði

  • Hefur reynslu af kennslu, námskeiðahaldi eða verkefnastjórnun er kostur

  • Hefur áhuga á spuna og skapandi fræðslu

  • Getur starfað bæði á íslensku og ensku

Með umsókn skal fylgja ferilskrá og stutt kynningarbréf.

Umsóknir fyrir eina eða fleiri stöður má senda saman eða í sitthvoru lagi á stjornimprov@gmail.com.

Umsóknarfrestur er til og með 15. júní 2025.